Hafðu samband EN

Persónuvernd

Rennsli ehf. fer með persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679.

Ábyrgðaraðili

Rennsli ehf., kt. 711291-2029, Akralind 1, 201 Kópavogi. Netfang: rennsli@rennsli.is .

Fyrirspurnir

Þegar þú sendir fyrirspurn á vefnum fáum við hana í tölvupósti: nafn, netfang og það sem þú bætir við (fyrirtæki, sími, erindi, lýsing). Formið er varið gegn ruslpósti með Cloudflare Turnstile, sem metur tæknileg merki frá vafranum en setur engar vafrakökur. Náist ekki að senda formið opnast tölvupóstur í þínu póstforriti í staðinn. Nafn og netfang þurfum við til að geta svarað, annað er valfrjálst.

Við notum upplýsingarnar til að svara og vinna úr fyrirspurninni, og ef til kemur til tilboðs eða samnings. Heimildin er lögmætir hagsmunir okkar af því að svara fyrirspurnum (6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. f-lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar). Sért þú sjálfur væntanlegur viðskiptavinur byggir vinnslan á beiðni þinni um samning (2. tölul. 9. gr., sbr. b-lið). Við notum upplýsingarnar ekki í markaðsskyni og seljum þær ekki. Við látum þær ekki öðrum í té nema þeim sem vinna fyrir okkur, því sem verkið krefst eða lög kveða á um.

Starfsumsóknir

Umsóknir sem berast í tölvupósti notum við til að meta umsækjendur og til að hafa samband ef starf losnar. Heimildin er beiðni þín áður en samningur er gerður (2. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr.) og lögmætir hagsmunir okkar (f-liður). Við geymum umsóknir í allt að 12 mánuði. Viljir þú að umsókn sé eytt fyrr, sendu okkur línu.

Viðskiptatengsl

Við skráum nöfn, netföng og síma tengiliða hjá verkkaupum, aðalverktökum og birgjum til að vinna verkin og eiga samskipti um þau. Heimildin er samningur (b-liður) eða lögmætir hagsmunir okkar (f-liður). Upplýsingarnar geymum við meðan viðskiptin standa og samskiptin geta skipt máli.

Hve lengi

Fyrirspurnir geymum við í tölvupósti okkar svo lengi sem þær geta nýst í samskiptum við þig eða þitt fyrirtæki. Gögn sem tengjast reikningum geymum við í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs vegna lagaskyldu (20. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald; 3. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. c-lið).

Hver annar kemur að

Vefurinn er hýstur hjá Cloudflare, sem skráir IP-tölur gesta í öryggisskyni. Fyrirspurn úr forminu fer um Cloudflare og Microsoft Power Automate, sem sendir hana í pósthólf okkar án þess að geyma efnið. Tölvupóstur okkar er hjá Microsoft. Bæði eru bandarísk fyrirtæki, og flutningur gagna til Bandaríkjanna byggir á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um jafngilda vernd (EU-US Data Privacy Framework). Vefurinn setur engar vafrakökur og notar enga vefgreiningu.

Öryggi

Aðgangur að pósthólfum okkar er takmarkaður við starfsfólk og varinn með tveggja þrepa auðkenningu.

Réttindi þín

Þú getur beðið um aðgang að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu, fengið gögnin afhent og andmælt vinnslu. Sendu okkur línu á rennsli@rennsli.is . Við svörum innan mánaðar. Lagaskylda getur komið í veg fyrir eyðingu. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is ).

Við kunnum að uppfæra þessa yfirlýsingu. Nýjasta útgáfan er alltaf hér á vefnum.