Fjölskyldufyrirtæki með djúpar rætur í faginu.
Traust lagnaþjónusta síðan 1991, byggð á reynslu, fagmennsku og vottaðri sérhæfingu.
Rennsli var stofnað árið 1991 af hjónunum Þorgeiri Kristóferssyni pípulagningameistara og Ingu Pétursdóttur, í kringum rekstur sem Þorgeir hafði þá stundað frá árinu 1984.
Rennsli er traust félag, fjárhagslega vel statt, vel tækjum búið til allra lagnaverkefna og með mikla reynslu starfsmanna á því sviði. Við höfum unnið með mörgum af öflugustu verktökum landsins og þjónustað einstaklinga, fasteignafélög, húsfélög og stofnanir.
Í dag er Rennsli undirverktaki í flóknustu byggingaverkefnum landsins, með sérhæfingu í læknagasi, vatnsúðakerfum og BREEAM gangsetningu.
Það sem við stöndum fyrir.
Reynsla
Yfir 40 ára samfelld reynsla af lagnaverkum, með rætur til 1984.
Áreiðanleiki
Við skilum á tíma, innan staðla, í verkum þar sem ekkert má fara úrskeiðis.
Fagmennska
Löggiltir meistarar og reynt fagfólk í hverju verki.
Vottuð sérhæfing
Læknagas (ISO 7396-1), BREEAM gangsetning og vatnsúðakerfi.
Ertu með verk í pípunum?
Sendu okkur fyrirspurn um útboð, undirverktöku eða þjónustusamning og við metum verkið með þér.