Tæknileg dýpt fyrir kröfuhörðustu kerfin.
Það sem greinir Rennsli frá almennri lagnaþjónustu: vottuð sérhæfing í kerfum þar sem ekkert má fara úrskeiðis.
Sérhæfing
Læknagas
Lagnir og afhending lækningalofttegunda fyrir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir. Þrýstiprófanir, merkingar og rekjanleiki samkvæmt staðlinum.
Gangsetning og afhending
Gangsetning, prófanir og afhending kerfa samkvæmt BREEAM, með fullum prófunarskjölum og vottun við afhendingu.
Vatnsúðakerfi (sprinkler)
Hönnun, uppsetning, prófanir og eftirlit með vatnsúðakerfum samkvæmt brunavarnastöðlum.
Snjóbræðslukerfi
Snjóbræðslukerfi fyrir aðkomu, stéttar og bílaplön, samhæfð hitakerfum bygginga.
Hita- og neysluvatnskerfi
Hönnun og lögn hita- og neysluvatnskerfa fyrir stórbyggingar, með stillingu og orkuráðgjöf.
Ára samfelld reynsla af lagnaverkum, með rætur til 1984.
Prófanir og skjöl sem standast eftirlit.
Þrýstiprófanir, gangsetning og afhending eru skjalfest með fullum rekjanleika, hvort sem um er að ræða læknagas samkvæmt ISO 7396-1 eða BREEAM gangsetningu kerfa.
Ertu með verk í pípunum?
Sendu okkur fyrirspurn um útboð, undirverktöku eða þjónustusamning og við metum verkið með þér.