Sérhæfð lagnaþjónusta síðan 1991

Grensás, Landspítali

Heildarpípulagnir og læknagaskerfi (ISO 7396-1) fyrir nýja endurhæfingardeild, ásamt BREEAM gangsetningu og afhendingu.

Grensás, Landspítali
Hlutverk Rennsli

Heildarpípulagnir og læknagaskerfi (ISO 7396-1) fyrir nýja endurhæfingardeild, ásamt BREEAM gangsetningu og afhendingu.

Endurhæfingardeild Landspítalans á Grensási kallaði á lagnakerfi sem standast ströngustu kröfur heilbrigðisþjónustu. Rennsli annaðist heildarpípulagnir og læknagaskerfi sem undirverktaki Ístaks, með áherslu á öryggi, rekjanleika og vottaða afhendingu.

Geiri
Heilbrigði
Aðalverktaki
Ístak
Ár
2024
Til baka í verk
Verkferlið

Frá áskorun að vottaðri afhendingu

01

Áskorun

Í heilbrigðisbyggingu má ekkert fara úrskeiðis. Læknagas, súrefni og lyfjaloft, þarf að uppfylla ISO 7396-1, og BREEAM vottun verksins krefst þess að gangsetning og afhending séu fullkomlega skjalfest og rekjanleg.

02

Nálgun og framkvæmd

Rennsli lagði og prófaði læknagaskerfi samkvæmt ISO 7396-1 ásamt neysluvatni, fráveitu, hita- og kælikerfum, vatnsúðakerfi og þrýstilofti, í náinni samvinnu við aðalverktaka og verkeftirlit, með þrýstiprófunum og öruggri meðhöndlun lyfjalofts.

03

Afhending og rekjanleiki

Við afhendingu fylgdu full prófunarskjöl, samræmisyfirlýsingar og BREEAM gangsetningargögn (Man 04), þannig að kerfin voru tilbúin fyrir úttekt með fullum rekjanleika frá fyrstu lögn að lokaprófun.

Kerfi sem Rennsli annaðist
  • Læknagas, súrefni og lyfjaloft (ISO 7396-1)
  • Neysluvatn
  • Fráveita
  • Hitakerfi
  • Kælikerfi
  • Vatnsúðakerfi (sprinkler)
  • Þrýstiloft
  • Hreinlætistæki
  • Snjóbræðsla

Ertu með verk í pípunum?

Sendu okkur fyrirspurn um útboð, undirverktöku eða þjónustusamning og við metum verkið með þér.